Þar sem undirritaður er sigurvegari gærkvöldsins þykir rétt að hann skrái hér nokkur orð um atburðinn, skv. nýlega störtuðu trendi.
Kvöldið einkenndist af afskaplega hraðri spilamennsku og mátti það þakka fjölda spilara, sem voru einungis fjórir, og fjarveru Andra, sem á það til að vera full upptekinn af spjalli á stundum.
Nýr spilafélagi var prufukeyrður, enda hafa nú tveir kjarnameðlimir farið af landi brott til náms til lengri eða styttri tíma, en það eru þeir Hákon og Andri. Meðlimsefnið ber nafnið Eyþór Páll og er frændi undirritaðs. Sá hefur spilað fimm spila póker frá barnsaldri og má segja að ánægja sitjandi félaga með Eyþór hafi verið nokkur. Búast má við því að hann verði vígður inn á næsta spilakvöldi.
Þá er það skýrslan:
Staður: Ægisíða 103, kjallari/Pókerhöllin
Þátttakendur: Arnór, Eyþór, Jónas og Mummi
Tími: 26. ágúst, 19:20-22:18
Pottur: Arnór 1000 kr., Eyþór 1000 kr., Jónas 1000 kr., Mummi 1500 kr.
Lokaniðurstaða:
Arnór: +630 kr.
Eyþór: -200 kr.
Jónas: +470 kr.
Mummi: -880 kr.
Skemmtanagildi: Gríðarlegt.
Mönnum leist ekki á blikuna í byrjun þar sem nýliðaefnið tók fyrsta pottinn með trompi, en þegar á leið sýndi hann það og sannaði að hann er svo sannarlega fær um að tapa peningum eins og við hinir. Að auki var það ágætt, enda oft þörf á að lækka rostann í frænda.
Vonbrigði kvöldsins átti Mummi án efa, þegar hann reiknaði út sínar líkur tvö spil í röð og þóttist ansi sigurviss, og lagði stórt undir samkvæmt því. Því miður (fyrir hann) sáu undirritaður og Jónas til þess að peningarnir færu í aðrar áttir en til Mumma.
Hápunktar kvöldsins voru án efa hávært gól Jónasar og Mumma í hvert sinn sem skemmtilegt lag kom í græjurnar, frændaflipp undirritaðs og frænda sem enginn annar botnaði í (og varla þeir sjálfir), og gífurlega hresst Singstar partí að loknu spili, með feiknarlega góðri viðbót Daða Sveinbjarnar og Önnu Tryggva, húsmóður að Ægisíðu 103, kjallara.
Þurfum við ekki að fara að halda stofnfund?
sunnudagur, ágúst 27, 2006
mánudagur, ágúst 14, 2006
Stofnfundarfélagstillögur
Það eru hér nokkrar tillögur, sem ef til vill mætti leggja fyrir stofnfund:
1. - að félagsmenn leggi ákveðna upphæð í sjóð á hverju spilakvöldi sem verði notað til uppbyggingarstarfs; það er kaup á munum tengdum spilinu, eins og til dæmis fjölgun spilapeninga og spilastokka eftir þörfum, þótt þeir munir sem nú eru í minni eigu láti lítið á sjá hefur mörgum oft þótt eins og meira mætti vera til af spilapeningum sem tákna minni upphæðirnar, enda er óneitanlega erfitt að sjá aukningu í fjölda spilapeninga þegar þeir sem vinna á eru oftar en ekki með litla bunka af svörtum og hvítum peningum án þess endilega að aðrir sjái greinilega hvað sé á seyði. Þá mætti einnig kaupa filtdúk til að leggja á borðið svo spilið verði virðulegra að einhverju leyti; ásamt munum eins og peningarekkum og sjálfvirkum stokkurum. Að ógleymdu gefaraskyggni.
2. - að meira skikki verði komið á veitingafyrirkomulag. Þannig gætu gestir hússins til dæmis komið með tertur úr bæði brauði og súkkulaði fyrir svanga menn, nú eða einfalda kosti eins og kex og vínber. Þó svo ekki að sé etið við spilaborðið, enda er það ljótur siður með einsdæmum sem þarf að taka fyrir eins skjótt og auðið er.
3. - að sagnfræðingum og öðrum sem hafa hlotið gráður frá æðri menntastofnunum verði meinað að innbyrða áfengi á þessum kvöldum, enda fyrirmyndir ómenntaðri manna.
4. - að settur verði sérstakur varnagli við að menn tapi eittþúsundkrónum eða meira áður en 20 mínútur séu liðnar, enda bjánalegt að gefa sér að nokkur maður ætli sér nokkuð alvarlegt með slíku framferði.
Hafa svo heyrst raddir um að halda stofn- og kveðjufund þann 17. ágúst næstkomandi, og er það vel. Einhverjar mótbárur? Nei? Gott. Hver er með húsnæðið? Mummi? Gott.

miðvikudagur, júlí 26, 2006
Póker á morgun? Eða miðv. í næstu viku..
Jæja
hvernig væri að hafa póker annað kvöld?
Eða á miðvikudag í næstu viku ef annað kvöld hentar illa...
Kommentið plís og þið sem eruð með virkt ímeil hjá Halla Volvo og Jónasi látið þá vita og skráið þá sem þátttakendur að þessu bloggi.
Kv Hákon (Búinn að fá þokkalega nóg af Excel forritun...)

miðvikudagur, júlí 19, 2006
Að gefnu tilefni
Þar sem fram hefur komið óánægja ákveðinna aðila varðandi ákveðin atriði sjáum við okkur knúna til að útskýra fyrrnefnd ákveðin atriði:
Að auki skal tekið fram að nýliðun í pókerklúbbnum skal einungis fara fram með samþykki meirihluta hinnar ókjörnu stjórnar, þar til annað verður ákveðið af hinni ókjörnu stjórn.
Reykjavík, þann 19. júlí 2006,
Skuggaráðuneytið.
- Þann 15. júlí sl. komu þrír af meðlimum óformlega pókerklúbbsins saman, ásamt tveimur viðhengjum, að Gerðhömrum 18 í Reykjavík. Úrslit kvöldsins voru þau að meðlimir óformlega klúbbsins gengu mun fjáðari frá borði en fyrrnefnd viðhengi, en þau töpuðu öllu því sem þau höfðu lagt undir til hinna reyndu meðlima.
- Samkvæmt órituðum reglum þessa óformlega klúbbs þarf a.m.k. meirihluti hinnar ókjörnu stjórnar klúbbsins að vera viðstaddur til að pókerkvöldið geti talist pókerklúbbsfundur. Það er því ljóst að hér er ekki um að ræða formlegt pókerkvöld óformlega pókerklúbbsins, en einungis tilraun nokkurra til að a) kanna mögulega nýliðun í pókerklúbbnum og b) hafa sem mest fé af viðhengjum.
Að auki skal tekið fram að nýliðun í pókerklúbbnum skal einungis fara fram með samþykki meirihluta hinnar ókjörnu stjórnar, þar til annað verður ákveðið af hinni ókjörnu stjórn.
Reykjavík, þann 19. júlí 2006,
Skuggaráðuneytið.
föstudagur, júlí 07, 2006
Formlegur stofnfundur óformlega klúbbsins
Þrátt fyrir að nú séu liðnir u.þ.b. níu (9) mánuðir síðan þeir sem klúbbinn stofnuðu í upphafi spiluðu fyrst saman hefur enn ekki verið haldinn formlegur stofnfundur þessa óformlega klúbbs. Undirritaður leggur til að þetta verði gert næsta pókerkvöld sem ratast á helgi (sem flest hin fyrri) og leggur um leið til að þá verði spilað á spil að fundi loknum. Undirritaður hefur einnig hripað niður drög að dagskrá fundarins verði svohljóðandi:
1. mál, um kl. 8.20 e.h.: Fundur settur. Gestgjafi bíður spakur eftir að aðrir fundarmenn mæti á svæðið. Þegar sem flestir fundarmenn hafa mætt eru þeir skammaðir af gestgjafa fyrir að mæta of seint.
2. mál: Fundarritari er skipaður, og er lagt til að það verði forláta segulbandstæki eða annað hliðrænt tæki með upptökumöguleika. Transskríbent er skipaður Steinar Wang enda skjalamöppudýr með eindæmum.
3. mál: Vandlega valið í stöður. Arnór Bogason er sjálfskipaður formaður, enda eigandi spilapeninganna. Bankastjóri er Hákon Skenstad, fjármálastjóri Andri Egilsson, handhafi prókúru og bankastjóri í fjarveru Hákons. Jónas Örn Helgason er sjálfkjörinn meistari og í öldungaráði er einn maður, Guðmundur Arnlaugsson. Síðast en ekki er Haraldur Bj Halldórsson, stóri blindur.
4. mál: Jónas Örn Helgason mætir og skýrir fjarveru sína með langloku um langlokur á American Style.
5. mál: Segulbandstækið stöðvast.

þriðjudagur, júní 06, 2006
Pókerkvöld föstudaginn 2. júní
Viðstaddir voru:
- Andri
- Arnór
- Hákon
- Halli Volvo
- Meistarinn
- Steinar
Buy-in var 1000 krónur og spilaði enginn fyrir meira en það.
Lokastöður voru eftirfarandi:
- Andri: 1570 kr.
- Arnór: 1150 kr.
- Hákon: 3280 kr.
- Halli Volvo: 0 kr.
- Meistarinn: 5.000.000 kr.
- Steinar: 0 kr.
Leiðréttið mig endilega ef þetta er vitlaust, þetta er gert eftir minni!
Tekið var upp á þeirri nýbreytni þetta kvöld að tillögu Andra að hækka litla og stóra blind þegar leið á spilið. Það reyndist góð viðbót því þannig varð veðmálafeimnin minni hjá mönnum og auðskiptingin varð enn meiri.
Eftir spilið var tekið á því í singstar og á trampólíninu hans Jónasar. Mikið mildi var að enginn skyldi brjóta bein eða kremja líffæri við þá iðju!
Hvenær er svo næsta pókerkvöld?
föstudagur, júní 02, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)