Þrátt fyrir að nú séu liðnir u.þ.b. níu (9) mánuðir síðan þeir sem klúbbinn stofnuðu í upphafi spiluðu fyrst saman hefur enn ekki verið haldinn formlegur stofnfundur þessa óformlega klúbbs. Undirritaður leggur til að þetta verði gert næsta pókerkvöld sem ratast á helgi (sem flest hin fyrri) og leggur um leið til að þá verði spilað á spil að fundi loknum. Undirritaður hefur einnig hripað niður drög að dagskrá fundarins verði svohljóðandi:
1. mál, um kl. 8.20 e.h.: Fundur settur. Gestgjafi bíður spakur eftir að aðrir fundarmenn mæti á svæðið. Þegar sem flestir fundarmenn hafa mætt eru þeir skammaðir af gestgjafa fyrir að mæta of seint.
2. mál: Fundarritari er skipaður, og er lagt til að það verði forláta segulbandstæki eða annað hliðrænt tæki með upptökumöguleika. Transskríbent er skipaður Steinar Wang enda skjalamöppudýr með eindæmum.
3. mál: Vandlega valið í stöður. Arnór Bogason er sjálfskipaður formaður, enda eigandi spilapeninganna. Bankastjóri er Hákon Skenstad, fjármálastjóri Andri Egilsson, handhafi prókúru og bankastjóri í fjarveru Hákons. Jónas Örn Helgason er sjálfkjörinn meistari og í öldungaráði er einn maður, Guðmundur Arnlaugsson. Síðast en ekki er Haraldur Bj Halldórsson, stóri blindur.
4. mál: Jónas Örn Helgason mætir og skýrir fjarveru sína með langloku um langlokur á American Style.
5. mál: Segulbandstækið stöðvast.
föstudagur, júlí 07, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli