miðvikudagur, júlí 26, 2006

Póker á morgun? Eða miðv. í næstu viku..

Jæja

hvernig væri að hafa póker annað kvöld?
Eða á miðvikudag í næstu viku ef annað kvöld hentar illa...

Kommentið plís og þið sem eruð með virkt ímeil hjá Halla Volvo og Jónasi látið þá vita og skráið þá sem þátttakendur að þessu bloggi.

Kv Hákon (Búinn að fá þokkalega nóg af Excel forritun...)

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Að gefnu tilefni

Þar sem fram hefur komið óánægja ákveðinna aðila varðandi ákveðin atriði sjáum við okkur knúna til að útskýra fyrrnefnd ákveðin atriði:
  1. Þann 15. júlí sl. komu þrír af meðlimum óformlega pókerklúbbsins saman, ásamt tveimur viðhengjum, að Gerðhömrum 18 í Reykjavík. Úrslit kvöldsins voru þau að meðlimir óformlega klúbbsins gengu mun fjáðari frá borði en fyrrnefnd viðhengi, en þau töpuðu öllu því sem þau höfðu lagt undir til hinna reyndu meðlima.
  2. Samkvæmt órituðum reglum þessa óformlega klúbbs þarf a.m.k. meirihluti hinnar ókjörnu stjórnar klúbbsins að vera viðstaddur til að pókerkvöldið geti talist pókerklúbbsfundur. Það er því ljóst að hér er ekki um að ræða formlegt pókerkvöld óformlega pókerklúbbsins, en einungis tilraun nokkurra til að a) kanna mögulega nýliðun í pókerklúbbnum og b) hafa sem mest fé af viðhengjum.
Enginn skal því velkjast í vafa um að enginn stofnfundur hefur enn verið haldinn, enda skal það ákveðið í fullu samræmi við og með fullu samþykki ókjörinnar stjórnar (sjá fyrri færslu).

Að auki skal tekið fram að nýliðun í pókerklúbbnum skal einungis fara fram með samþykki meirihluta hinnar ókjörnu stjórnar, þar til annað verður ákveðið af hinni ókjörnu stjórn.

Reykjavík, þann 19. júlí 2006,

Skuggaráðuneytið.

föstudagur, júlí 07, 2006

Formlegur stofnfundur óformlega klúbbsins

Þrátt fyrir að nú séu liðnir u.þ.b. níu (9) mánuðir síðan þeir sem klúbbinn stofnuðu í upphafi spiluðu fyrst saman hefur enn ekki verið haldinn formlegur stofnfundur þessa óformlega klúbbs. Undirritaður leggur til að þetta verði gert næsta pókerkvöld sem ratast á helgi (sem flest hin fyrri) og leggur um leið til að þá verði spilað á spil að fundi loknum. Undirritaður hefur einnig hripað niður drög að dagskrá fundarins verði svohljóðandi:

1. mál, um kl. 8.20 e.h.: Fundur settur. Gestgjafi bíður spakur eftir að aðrir fundarmenn mæti á svæðið. Þegar sem flestir fundarmenn hafa mætt eru þeir skammaðir af gestgjafa fyrir að mæta of seint.
2. mál: Fundarritari er skipaður, og er lagt til að það verði forláta segulbandstæki eða annað hliðrænt tæki með upptökumöguleika. Transskríbent er skipaður Steinar Wang enda skjalamöppudýr með eindæmum.
3. mál: Vandlega valið í stöður. Arnór Bogason er sjálfskipaður formaður, enda eigandi spilapeninganna. Bankastjóri er Hákon Skenstad, fjármálastjóri Andri Egilsson, handhafi prókúru og bankastjóri í fjarveru Hákons. Jónas Örn Helgason er sjálfkjörinn meistari og í öldungaráði er einn maður, Guðmundur Arnlaugsson. Síðast en ekki er Haraldur Bj Halldórsson, stóri blindur.
4. mál: Jónas Örn Helgason mætir og skýrir fjarveru sína með langloku um langlokur á American Style.
5. mál: Segulbandstækið stöðvast.