mánudagur, ágúst 14, 2006

Stofnfundarfélagstillögur

Það eru hér nokkrar tillögur, sem ef til vill mætti leggja fyrir stofnfund:

1. - að félagsmenn leggi ákveðna upphæð í sjóð á hverju spilakvöldi sem verði notað til uppbyggingarstarfs; það er kaup á munum tengdum spilinu, eins og til dæmis fjölgun spilapeninga og spilastokka eftir þörfum, þótt þeir munir sem nú eru í minni eigu láti lítið á sjá hefur mörgum oft þótt eins og meira mætti vera til af spilapeningum sem tákna minni upphæðirnar, enda er óneitanlega erfitt að sjá aukningu í fjölda spilapeninga þegar þeir sem vinna á eru oftar en ekki með litla bunka af svörtum og hvítum peningum án þess endilega að aðrir sjái greinilega hvað sé á seyði. Þá mætti einnig kaupa filtdúk til að leggja á borðið svo spilið verði virðulegra að einhverju leyti; ásamt munum eins og peningarekkum og sjálfvirkum stokkurum. Að ógleymdu gefaraskyggni.

2. - að meira skikki verði komið á veitingafyrirkomulag. Þannig gætu gestir hússins til dæmis komið með tertur úr bæði brauði og súkkulaði fyrir svanga menn, nú eða einfalda kosti eins og kex og vínber. Þó svo ekki að sé etið við spilaborðið, enda er það ljótur siður með einsdæmum sem þarf að taka fyrir eins skjótt og auðið er.

3. - að sagnfræðingum og öðrum sem hafa hlotið gráður frá æðri menntastofnunum verði meinað að innbyrða áfengi á þessum kvöldum, enda fyrirmyndir ómenntaðri manna.

4. - að settur verði sérstakur varnagli við að menn tapi eittþúsundkrónum eða meira áður en 20 mínútur séu liðnar, enda bjánalegt að gefa sér að nokkur maður ætli sér nokkuð alvarlegt með slíku framferði.

Hafa svo heyrst raddir um að halda stofn- og kveðjufund þann 17. ágúst næstkomandi, og er það vel. Einhverjar mótbárur? Nei? Gott. Hver er með húsnæðið? Mummi? Gott.

2 ummæli:

Hákon sagði...

ég fer 30. ágúst en ég veit að Andri fer fyrr...

Andri sagði...

Ég fer á miggudag. Er til í að grípa í spil í kvöld.