Nú er Jónas Örn horfinn á vit okkar gömlu fjandmanna, Dananna. Má búast við að þar verði hann þar til yfir lýkur, enda ansi ári mikill drykkjumaður, rétt eins og Danir sjálfir. Þykir þó slæmt að missa góðan dreng sem Jónas er. Einnig hefur Hákon okkar Skjenstad sagt skilið við móðurlandið (þar eð faðir hanz er Norðmaður) í bili. Þar mun hann leggja stund á 1600 metra af hagfræði. Búizt er við að Hákon snúi aftur innan fimm ára, og þá með 1600 metra langa hagfræðiskýrzlu, eða doktorsritgerð eins og einnig er kölluð. Jákvætt er þó að við höfum nú hremmt Andra úr prízund Frakka, enda var hann alltaf einn af helstu hvatamönnum spilakvöldanna góðu.
Eftir standa þá eftirfarandi menn, í réttri stafrófsröð:
Andri Egilsson, presbyterian
Arnór Bogason, umboðsmaður og eventyrfortæller
Guðmundur Arnlaugsson,
Haraldur Björn Halldórsson, tö*mmermand og reparation
Jónas Örn Helgason, ofviti
Að auki hafa þeir Bjarni Bjarnason og Eyþór Páll Eyþórsson spilað með okkur í cirka eitt skifti hvor. Hart verður lagt að þeim á næstunni um að vera með í leiknum, ef svo mætti kalla. Einnig mun Níels nokkur hafa lagt hart að okkur um að fá inngöngu í félagið og verður það alvarlega íhugað, enda drengur góður, og auk þess vantar okkur fleiri til að spila.
Bréfritari vill að lokum óska eftir uppástungu að dagsetningu næsta spilakvölds.
Með kærri kveðju frá íslenska landsliðinu í vatnapóló og aðdáendum þess,
(sign.)
Arnór Bogason
Skuggaráðuneytinu
*Ísafjarðarprentsmiðja auglýsir: Vinsamlega skilið aftur danzka ö-inu sem hvarf úr setjaraherberginu þann 19. febrúar 1954 síðaztliðinn. Fundarlaun: Stóra pókerbókin (í litlu broti)
2 ummæli:
Ég ætla biðja fundarritara um að vera edrú er næsta fundargerð er kláruð. Bendi á að ég get ekki talist húsfrú. Virðingarfyllst, með von um meiri póker, Guð.
Magnað.
ég vil benda á að Mummi getur víst talist húsfrú samkvæmt ströngustu skilgreiningum.
Annars er klúbburinn alltaf velkominn í skíðapóker ef áhugi er fyrir hendi!
Skrifa ummæli